Geta hinir dánu lifað á ný?
Hvað heldurðu?
-
Já
-
Nei
-
Kannski
HVAÐ SEGIR BIBLÍAN?
Fólk mun rísa upp frá dauðum. – Postulasagan 24:15.
HVAÐ ÞÝÐIR ÞAÐ FYRIR ÞIG?
Þessi von er hughreystandi þegar ástvinur deyr. – 2. Korintubréf 1:3, 4.
Það leysir okkur undan ótta við dauðann. – Hebreabréfið 2:15.
Það gefur okkur örugga von um að fá að hitta látna ástvini aftur. – Jóhannes 5:28, 29.
ER HÆGT AÐ TREYSTA ÞVÍ SEM BIBLÍAN SEGIR?
Já, og fyrir því eru að minnsta kosti þrjár ástæður:
-
Guð skapaði lífið. Í Biblíunni kemur fram að Jehóva Guð sé „uppspretta lífsins“. (Sálmur 36:10, Biblían 2010; Postulasagan 17:24, 25) Það er lítið mál fyrir þann sem gaf lifandi verum lífið að endurvekja þá sem eru dánir.
-
Guð hefur reist fólk upp frá dauðum. Í Biblíunni eru dæmi um átta einstaklinga sem voru reistir upp frá dauðum. Meðal þeirra voru ungir sem aldnir og konur jafnt sem karlar. Sumir höfðu verið látnir í aðeins stutta stund en einn þeirra hafði legið í gröfinni í fjóra daga. – Jóhannes 11:39–44.
-
Guð hefur brennandi löngun til að gera það aftur. Jehóva hatar dauðann og lítur á hann sem óvin. (1. Korintubréf 15:26) Hann þráir að sigrast á þessum óvini og útrýma honum með því að reisa fólk upp frá dauðum. Hann hlakkar til að vekja aftur til lífs á jörð þá sem eru í minni hans. – Jobsbók 14:14, 15.
TIL UMHUGSUNAR
Hvers vegna eldumst við og deyjum?
Svar Biblíunnar er að finna í 1. MÓSEBÓK 3:17–19 og RÓMVERJABRÉFINU 5:12.