Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

FORSÍÐUEFNI | RÍKI GUÐS: HVERJU GETUR ÞAÐ KOMIÐ TIL LEIÐAR FYRIR ÞIG?

Af hverju ætti ríki Guðs að skipta þig máli?

Af hverju ætti ríki Guðs að skipta þig máli?

Milljónir manna um allan heim leggja traust sitt á ríki Guðs. Þannig líkja þeir eftir Jesú sem kenndi fylgjendum sínum að biðja: „Til komi þitt ríki, verði þinn vilji ... á jörðu.“ – Matteus 6:10.

En þótt margt fólk langi gjarnan til að vita meira um ríki Guðs virðist flestum trúarbrögðum standa á sama um þetta ríki. Sagnfræðingurinn H. G. Wells sagði það athyglisvert „hve gríðarlega áherslu Jesús lagði á kenninguna um það sem hann kallaði himnaríki“ en þó hafi þessi kenning, að sögn Wells, fengið „tiltölulega lítið rúm í ... kennslu flestra kristinna kirkna“.

Ólíkt þessum kirkjum leggja Vottar Jehóva mikla áherslu á ríki Guðs. Hugleiddu þetta: Aðalmálgagn okkar, sem þú ert að lesa núna, er gefið út á 220 tungumálum. Hvert tölublað er prentað í tæplega 46 milljónum eintaka og er því útbreiddasta tímarit heims. Hver er meginboðskapur þess? Líttu á fullt heiti blaðsins: Varðturninn kunngerir ríki Jehóva.  *

Af hverju leggja Vottar Jehóva svona mikið á sig við að kunngera ríki Guðs? Meðal annars af því að við vitum að Guðsríki er aðalinntak þess sem boðað er í Biblíunni, mikilvægustu bók í heimi. Auk þess erum við sannfærð um að aðeins ríki Guðs geti leyst vandamálin sem blasa við mönnunum.

Vottar Jehóva beina athygli fólks að ríki Guðs og leitast þannig við að fylgja fordæmi Jesú. Þegar hann var hér á jörð lét hann líf sitt snúast um Guðsríki og lagði mikið á sig til að boða öðrum þetta ríki. (Lúkas 4:43) Af hverju var ríki Guðs svona mikilvægt í augum Jesú? Og hvað getur þetta ríki gert fyrir þig? Við hvetjum þig til að skoða svör Biblíunnar sem rætt er um í næstu greinum.

^ gr. 5 Jehóva er nafn Guðs samkvæmt frummálum Biblíunnar.