Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

B1

Boðskapur Biblíunnar

Jehóva Guð hefur réttinn til að stjórna. Aðferðir hans eru þær bestu. Það sem hann ætlar sér með jörðina og mannkynið nær fram að ganga.

Eftir 4026 f.Kr.

„Höggormurinn“ véfengir rétt Jehóva til að stjórna og dregur í efa að aðferðir hans séu réttar. Jehóva lofar að vekja upp „afkomanda“ sem mun að lokum tortíma höggorminum Satan. (1. Mósebók 3:1–5, 15) En Jehóva leyfir mönnunum að stjórna málum sínum sjálfir um tíma undir áhrifavaldi höggormsins.

1943 f.Kr.

Jehóva segir Abraham að hinn fyrirheitni „afkomandi“ komi af honum. – 1. Mósebók 22:18.

Eftir 1070 f.Kr.

Jehóva fullvissar Davíð konung og síðar meir Salómon son hans um að fyrirheitni ‚afkomandinn‘ verði af ættlegg þeirra. – 2. Samúelsbók 7:12, 16; 1. Konungabók 9:3–5; Jesaja 9:6, 7.

29 e.Kr.

Jehóva lýsir yfir að Jesús sé fyrirheitni ,afkomandinn‘ sem erfi hásæti Davíðs. – Galatabréfið 3:16; Lúkas 1:31–33; 3:21, 22.

33 e.Kr.

Höggormurinn Satan veitir fyrirheitna ,afkomandanum‘ tímabundna áverka með því að fá Jesú líflátinn. Jehóva reisir Jesú upp til lífs á himnum og tekur við andvirði fullkomins lífs hans. Þannig gerir Jehóva afkomendum Adams kleift að fá syndir sínar fyrirgefnar og hljóta eilíft líf. – 1. Mósebók 3:15; Postulasagan 2:32–36; 1. Korintubréf 15:21, 22.

Um 1914 e.Kr.

Jesús kastar höggorminum Satan niður til jarðar. Þar fær hann að dúsa um stuttan tíma. – Opinberunarbókin 12:7–9, 12.

Framtíðin

Jesús hefur Satan í haldi í 1.000 ár og eyðir honum síðan. Þar með mer hann höfuð hans í táknrænum skilningi. Upphafleg fyrirætlun Jehóva með jörðina og mannkynið nær fram að ganga, nafn hans er hreinsað af öllum ásökunum og það sannast að stjórnaraðferðir hans eru réttar. – Opinberunarbókin 20:1–3, 10; 21:3, 4.