Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

SPURNING 1

Hver er Guð?

„Fólk skal fá að vita að þú sem heitir Jehóva, þú einn ert Hinn hæsti yfir allri jörðinni.“

Sálmur 83:18

„Viðurkennið að Jehóva er Guð. Hann skapaði okkur og við tilheyrum honum.“

Sálmur 100:3

„Ég er Jehóva, það er nafn mitt. Ég gef engum öðrum dýrð mína né úthöggnum líkneskjum það lof sem mér ber.“

Jesaja 42:8

„Allir sem ákalla nafn Jehóva bjargast.“

Rómverjabréfið 10:13

„Öll hús eru auðvitað byggð af einhverjum en Guð er sá sem hefur gert allt.“

Hebreabréfið 3:4

„Horfið upp til himins og sjáið. Hver hefur skapað allt þetta? Það er hann sem leiðir stjörnurnar eins og her og telur þær, hann nefnir þær allar með nafni. Hann býr yfir svo gríðarlegum krafti og ógurlegum mætti að enga þeirra vantar.“

Jesaja 40:26