Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Speki fyrir hjartað og heilsuna

Speki fyrir hjartað og heilsuna

Speki fyrir hjartað og heilsuna

„Hugarró er líkamanum líf.“ – ORÐSKVIÐIRNIR 14:30.

„Glatt hjarta veitir góða heilsubót.“ – ORÐSKVIÐIRNIR 17:22.

● Salómon konungur sagði þessi einföldu en merkilegu orð fyrir hér um bil 3.000 árum. * En eru þau sönn? Hvað segja læknavísindi nútímans?

Varðandi muninn á rólegu hjarta og reiðigjörnu segir í tímaritinu Journal of the American College of Cardiology: „Nýlegar rannsóknir gefa til kynna að það sé samband milli reiði eða bræði og kransæðasjúkdóma.“ Í framhaldi af því stendur: „Til að fyrirbyggja og meðhöndla kransæðasjúkdóma . . . er jafnvel ekki nóg að beita hefðbundnum læknis- og lyfjameðferðum heldur einnig sálfræðimeðferð þar sem unnið er gegn reiði og heift.“ Í stuttu máli má segja að rólegt hjarta hlúi að góðri heilsu, rétt eins og Biblían segir.

Glatt hjarta hefur einnig jákvæð áhrif á heilsuna. Dr. Derek Cox er forstöðumaður innan heilbrigðiskerfisins í Skotlandi. Hann sagði í frétt á BBC: „Minni líkur eru á að þeir sem eru glaðir þurfi að glíma við líkamlega kvilla í framtíðinni heldur en þeir sem eru vansælir.“ Í sömu frétt segir: „Glaðlynt fólk er líka betur verndað fyrir hjartasjúkdómum og heilablóðfalli.“

Hvers vegna var speki Salómons, svo ekki sé minnst á aðra biblíuritara, svo langt á undan sinni samtíð? Svarið er einfalt. „Guð gaf Salómon speki og mikinn skilning.“ (1. Konungabók 4:29) Þessi speki er líka skrásett á einföldu máli svo að allir geti notið góðs af. Þar að auki er hún ókeypis.

Væri ekki heillaráð að lesa í Biblíunni að staðaldri? Milljónir manna hafa nú þegar uppgötvað sér til mikillar ánægju viskuna í orðum Salómons: „Speki mun þá koma til hjarta þíns, og þekkingin verða sálu þinni til yndis. Aðgætnin mun vernda þig og hyggindin varðveita þig.“ (Orðskviðirnir 2:10, 11) Er það ekki hughreystandi?

[Neðanmáls]

^ Þegar orðið „hjarta“ er notað í Biblíunni er yfirleitt átt við hinn innri mann, þar á meðal tilfinningarnar.