Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Af hverju að bíða með kynlíf?

Af hverju að bíða með kynlíf?

KAFLI 5

Af hverju að bíða með kynlíf?

„Ég finn fyrir þrýstingi til að prófa mig áfram með kynlíf.“ — Kelly.

„Mér finnst eins og ég sé eitthvað skrítinn af því að ég hef ekki stundað kynlíf.“ — Jordon.

„HEFURÐU aldrei sofið hjá?“ Þegar þú færð þessa spurningu langar þig kannski til að hverfa ofan í jörðina. Á mörgum stöðum er ungt fólk, sem hefur ekki stundað kynlíf, talið vera skrítið og furðulegt. Það kemur því ekki á óvart að svo margir byrji að stunda kynlíf á unglingsaldri.

Kynhvötin og þrýstingur jafnaldra

Ef þú ert kristinn veistu að í Biblíunni segir: „Haldið ykkur frá óskírlífi.“ (1. Þessaloníkubréf 4:3) Kannski finnst þér samt erfitt að hafa stjórn á kynhvötinni. „Stundum fer ég að hugsa um kynlíf án þess að það sé nokkur ástæða til,“ viðurkennir Páll. En þú mátt vera viss um að slíkar tilfinningar eru eðlilegar að ákveðnu marki.

Það er samt ekkert skemmtilegt að verða fyrir sífelldri stríðni og aðkasti vegna þess að maður er skírlífur. Hvað ef jafnaldrar þínir segja til dæmis að þú sért ekki alvöru maður eða kona nema þú hafir sofið hjá? „Jafnaldrarnir láta sem kynlíf sé bæði spennandi og eðlilegt,“ segir Ellen. „Ef maður sefur ekki hjá er maður stimplaður sem skrítinn.“

En það er önnur hlið á kynlífi fyrir hjónaband sem jafnaldrarnir tala kannski ekki um. María svaf hjá kærastanum sínum og hún segir: „Eftir á leið mér illa og ég skammaðist mín. Ég hataði sjálfa mig og ég hataði kærasta minn.“ Slík reynsla er miklu algengari en margir unglingar gera sér grein fyrir. Raunin er sú að kynlíf fyrir hjónaband er oft tilfinningalega erfið reynsla sem getur haft hræðilegar afleiðingar.

En stelpa að nafni Shanda spyr: „Hvers vegna hefur Guð gefið unglingum kynhvöt ef þeir eiga ekki að nota hana fyrr en þeir eru giftir?“ Þetta er góð spurning. Skoðum málið nánar:

Er kynhvötin eina sterka tilfinningin sem þú hefur? Nei, alls ekki. Jehóva Guð skapaði þig með alls konar tilfinningar og þrár.

Þarftu að fylgja hverri tilfinningu eða hvöt eftir um leið og hún blossar upp? Nei, því að Guð gerði þér líka kleift að hafa stjórn á hegðun þinni.

Hver er lærdómurinn? Þú getur kannski ekki komið í veg fyrir að sumar tilfinningar vakni en þú getur stjórnað því hvernig þú bregst við þeim. Að svala kynhvötinni í hvert skipti sem hún gerir vart við sig er í rauninni jafn heimskulegt og að lemja einhvern í hvert skipti sem maður reiðist.

Guð ætlaðist aldrei til þess að við myndum misnota getnaðarmáttinn. „Sérhvert ykkar temji sér að halda líkama sínum í helgun og heiðri,“ segir í Biblíunni. (1. Þessaloníkubréf 4:4) „Að elska hefur sinn tíma og að hata hefur sinn tíma.“ (Prédikarinn 3:1-8) Sömuleiðis hefur það sinn tíma að fullnægja kynhvötinni og sinn tíma að halda aftur af henni. Þegar allt kemur til alls ert það þú sem stjórnar löngunum þínum!

En hvað geturðu gert ef einhver stríðir þér og spyr: „Hefurðu í alvöru aldrei sofið hjá?“ Ekki láta það draga úr þér kjarkinn. Ef viðkomandi er að reyna að gera lítið úr þér gætirðu sagt: „Nei, ég hef aldrei sofið hjá, og veistu hvað? Ég er bara mjög ánægð(ur) með það!“ Eða þú gætir sagt: „Það er mitt einkamál sem ég ræði ekki um við aðra.“ * (Orðskviðirnir 26:4; Kólossubréfið 4:6) En kannski viltu að sá sem spurði þig fái að vita meira. Þá gætirðu valið að útskýra fyrir honum biblíulega afstöðu þína.

Dettur þér í hug fleiri svör við spurningunni: „Hefurðu í alvöru aldrei sofið hjá?“ Skrifaðu þau hér fyrir neðan.

․․․․․

Dýrmæt gjöf

Hvað finnst Guði um það þegar fólk ákveður að stunda kynlíf fyrir hjónaband? Segjum að þú hafir keypt gjöf handa vini þínum. En áður en þú nærð að gefa honum gjöfina hefur hann opnað hana af einskærri forvitni! Yrðir þú ekki sár? Þá geturðu rétt ímyndað þér hvernig Guði liði ef þú myndir sofa hjá fyrir hjónaband. Hann vill að þú bíðir með að njóta þeirrar gjafar sem kynlíf er þangað til þú ert gengin(n) í hjónaband. — 1. Mósebók 1:28.

Hvað áttu þá að gera í sambandi við kynhvötina? Temdu þér að hafa hemil á henni. Þú hefur styrkinn til þess! Biddu Jehóva um hjálp. Heilagur andi hans getur auðveldað þér að sýna sjálfstjórn. (Galatabréfið 5:22, 23) Minntu þig á að Jehóva „synjar þeim engra gæða sem ganga í grandvarleik“. (Sálmur 84:12) Ungur maður að nafni Gordon segir: „Þegar ég fer að gæla við þá tilhugsun að kynlíf fyrir hjónaband sé ekki svo slæmt hugleiði ég hvaða slæmu afleiðingar það myndi hafa á trú mína. Og þá skil ég að engin synd er þess virði að skaða samband mitt við Jehóva.“

Skírlífi er ekki skrítið eða afbrigðilegt. Kynlíf fyrir hjónaband er hins vegar niðurlægjandi, auðmýkjandi og skaðlegt. Láttu þess vegna ekki áróður þessa heims telja þér trú um að það sé eitthvað óeðlilegt við það að fylgja siðferðisreglum Biblíunnar. Með því að vera skírlífur verndarðu heilsuna, tilfinningalífið og — það sem mestu máli skiptir — sambandið við Guð.

LESTU MEIRA UM ÞETTA EFNI Í KAFLA 23 Í 1. BINDI BÓKARINNAR

[Neðanmáls]

^ gr. 15 Það er athyglisvert að Jesús ákvað að svara ekki þegar Heródes spurði hann spurninga. (Lúkas 23:8, 9) Stundum er best að bregðast við ósvífnum spurningum með því að þegja.

LYKILRITNINGARSTAÐUR

Ef einhver . . . hefur afráðið í hjarta sínu að varðveita sveindóm sinn, þá gerir hann vel.— 1. Korintubréf 7:37, New World Translation.

RÁÐ

Forðastu að umgangast þá sem hafa lágt siðferðismat, jafnvel þótt þeir haldi því fram að þeir séu sömu trúar og þú.

VISSIR ÞÚ . . . ?

Þeir sem stunda frjálst kynlíf eru ekki líklegir til að breyta venjum sínum þótt þeir giftist. Þeir sem eru trúir siðferðisreglum Guðs fyrir hjónaband eru líklegri til að vera trúir maka sínum.

HVAÐ ÆTLA ÉG AÐ GERA?

Ef ég ætla ekki að stunda kynlíf fyrir hjónaband verð ég að ․․․․․

Ef félagar mínir gera mér erfitt fyrir að standa við ákvörðun mína ætla ég að ․․․․․

Það sem mig langar til að spyrja foreldra mína um ․․․․․

HVAÐ FINNST ÞÉR?

Af hverju heldurðu að sumir geri grín að þeim sem hafa ekki sofið hjá?

Af hverju getur verið erfitt að vera skírlífur?

Hver er ávinningurinn af því að stunda ekki kynlíf fyrir hjónaband?

Hvernig myndirðu útskýra fyrir yngra systkini kosti þess að vera skírlífur?

[Innskot á blaðsíðu 51]

„Það sem hjálpar mér að standast kynferðislegar freistingar er að muna alltaf eftir því að ,enginn frillulífismaður eða saurugur á sér arfsvon í ríki Guðs‘.“ (Efesusbréfið 5:5) — Lydia

[Rammi á bls. 49]

Vinnublað

Hvað gerist næst — í raun og veru?

Jafnaldrar þínir fela oft af ásettu ráði slæmar afleiðingar þess að stunda kynlíf fyrir hjónaband og hið sama má segja um skemmtanaiðnaðinn. Skoðum þrjú dæmi. Hvað heldur þú að myndi gerast næst hjá þessum unglingum — í raun og veru?

● Skólafélagi montar sig af því að hafa sofið hjá mörgum stelpum. Hann segir að það sé skemmtilegt og að enginn skaðist. En hvað gerist næst hjá honum og stelpunum — í raun og veru? ․․․․․

● Kvikmynd endar á því að ungt ógift par sefur saman til að tjá hvort öðru ást sína. Hvað myndi gerast næst — í raunveruleikanum? ․․․․․

● Þú hittir sætan strák sem spyr hvort þú viljir sofa hjá honum. Hann segir að enginn þurfi að komast að því. Ef þú létir til leiðast og reyndir síðan að halda þessu leyndu hvað myndi í alvörunni gerast næst? ․․․․․

[Mynd á bls. 54]

Að stunda kynlíf fyrir hjónaband er eins og að opna gjöf áður en búið er að gefa þér hana.