Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 117

Þiggjum kennslu Jehóva

Þiggjum kennslu Jehóva

(Jesaja 50:4; 54:13)

1. Komið þið fagnandi, kynnist Guði betur.

Komið, því lífsvatnið hægt er að fá.

Jehóva hefur hungruðum gefið

heilnæmu kennsluna orðinu frá.

2. Vanrækjum aldrei að safnast hingað saman.

Samkomur kenna Guðs réttlætisleið.

Hér er Guðs andi, hér okkar vinir,

hér verður gangan í ljósinu greið.

3. Lofgjörðir mælir hver lærisveinatunga.

Lofsöngur er þeirra ómþýða lag.

Ásamt Guðs þjónum samkomur sækjum,

sameinuð alls staðar verum hvern dag.