Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 101

Boðum sannleikann um ríkið

Boðum sannleikann um ríkið

(Postulasagan 20:20, 21)

1. Það mörgum var hin þyngsta þraut

að þekkja ekki lífsins braut.

Ljós sitt bjarta Guð þá gaf

sem geislum sannleiks stafar af.

Þá varð loks skýrt orð skaparans,

við skyldum þjóna ríki hans,

nafn Guðs kynna’ á hverjum stað

og hvetja fleiri til að helga það.

Þann vitnisburð við berum fús

um borg og bæ, úr húsi’ í hús.

Þá ljósið munu sumir sjá,

það sannleiksorð sem frelsar þá.

Við trúna eflum alls staðar

og aukum starfið hér og þar.

Berum samrýmd öll það ok

uns alheims Drottinn boðar starfsins lok.