Söngur 84
„Ég vil“
1. Okkur sýndi sonur Guðs ást,
bauð sig fram að líða og þjást
til að lifa á jörð, sjá um sáttargjörð,
við sannleikans boðun að fást.
Mikla huggun fólkið þá fann
er fatlaða læknaði hann.
Sínu umboði æ gerði góð skil
og ástríkur sagði: „Ég vil.“
2. Þjónninn trúi’ og hyggni er hér
til hjálpar því Guðs gjöf hann er.
Honum berjumst við hlið er boðum Guðs grið
sem bjargræði auðmjúkum ber.
Menn að sönnu sjá það svo vel
er sýnum við kærleikans þel.
Þegar þurfandi leita svo þín til
skalt þú fljótur svara: „Ég vil.“
(Sjá einnig Jóh. 18:37; Ef. 3:19; Fil. 2:7.)