Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 77

Fyrirgefum fúslega

Fyrirgefum fúslega

(Sálmur 86:5)

1. Guð í gæsku sinni

Jesú gaf sem lausnargjald.

Syndir gat þá fyrirgefið,

afmáð gráðugt dauðans vald.

Ef við iðrumst einlæglega

sakaruppgjöf veitir hann.

Því á grunni lausnargjaldsins

náðar Guð hvern syndarann.

2. Líkn við fáum líka

ef við líkjumst Guði vel.

Verum fljót að fyrirgefa,

sýnum fús slíkt hugarþel.

Langlynd umberum hvert annað,

viljum engan særa reið.

Sýnum öðrum aðeins kærleik,

hún er ætíð best sú leið.

3. Ræktum meiri miskunn því

að mikil er sú dyggð.

Okkur hatri gegn hún gætir,

eyðir gremju, sorg og hryggð.

Ef við gjarnan fyrirgefum

okkar Guði líkjumst við.

Þannig ást Guðs endurspeglum,

Drottins yndi’ að veita grið.