Söngur 7
Kristin vígsla
1. Með visku Drottins og vilja
öll veröldin var gjörð
svo hann á öll sín handaverk
á himni og á jörð.
Hann mönnum lífsandann léði
og ljóst hann gerði þeim
að tilbeiðslan heyrir honum til
og heiður um allan heim.
2. Í vatni var Jesús skírður
og virti réttlætið.
Í bæn hann Guði gaf það heit
að ganga við hans hlið.
Og er hinn smurði Guðs sonur
kom sæll úr Jórdaná,
hann hlýðinn gat verið vottur trúr
sem vígður þjónn Drottins þá.
3. Þig nálgumst, Jehóva, núna
og nafn þitt lofum bljúg.
Í auðmýkt okkur afneitum,
þér einum vígjumst trú.
Þinn einkason mönnum sendir,
líf sitt gaf dýrmætt hér.
Við lifum ei okkur lengur þá
en lifum og deyjum þér.
(Sjá einnig Matt. 16:24; Mark. 8:34; Lúk. 9:23.)