Söngur 21
Sælir eru miskunnsamir
1. Hve sælir eru mildir menn,
Guð metur slíka fegurð enn.
Hann þráir þeim að gefa grið
sem göfugt elska réttlætið.
Við Golgata sást guðleg náð
því gjald til lausnar var hans ráð.
Í miskunn fer með mannlegt hold,
þess minnist að við erum mold.
2. Guðs fyrirgefning friðar þá
sem fúsir öðrum miskunn tjá.
Af náð Guðs þeir því njóta góðs
af nægtum Drottins fórnarblóðs.
Með gleði miskunn miðla þeir
og mildir boða orð Guðs meir.
Af gæsku segja: „Gleðjist þú
því Guðsríki er komið nú.“
3. Guðs elsku lítillátir sjá,
þá ljúft hann dæmir himni frá.
Hans miskunn kynnast munu vel
því milt þeir sýndu hjartaþel.
Ef mjög við glæðum milda lund
og miskunn sýnum hverja stund
þá verður okkur venja töm
að vera ætíð miskunnsöm.
(Sjá einnig Lúk. 6:36; Rómv. 12:8; Jak. 2:13.)