Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 26

Göngum með Guði

Göngum með Guði

(Míka 6:8)

1. Með Guði hógvær göngum nú

og góðvild elskum við.

Og reynumst honum ráðvönd, trú,

þá reynum við hans lið.

Ef dýran verndum sannleiks sjóð

gegn svikum er það vörn,

en leyfum Guði’ að lýsa slóð

og leiða sem sín börn.

2. Með Guði hreinleik gakktu í

og gætni freisting gegn

og sæktu fram til þroska því

sem þekkur Drottins þegn.

Og allt það sem er elskuvert

og einnig satt og rétt,

í trú á Guð og tryggð sé gert

og traust á hann sé sett.

3. Með Guði trúföst göngum við

þá gæði öðlumst mest,

því guðrækni hún gefur frið

sem gætir okkar best.

Með honum göngum glöð í lund

og gefum lofgjörð hér,

því gleði sérhver gefur stund

sem Guði helguð er.