Söngur 27
Fylgdu Jehóva
1. Áður fyrr þráðum við frelsi að fá
falstrúarbragðanna kenningum frá.
Hjörtun því glöddust við gleðifrétt þá,
Guðsríki heyrðum við um.
(VIÐLAG)
Fús Jehóva fylgdu,
fagna yfir því.
Hann getur ei gleymt þér,
gakk ljósi hans í.
Flyt boðskap um frelsi,
frið jörðinni á.
Stjórn Guðs Kristur stýrir,
stöðugt vex hún þá.
2. Guði við þjónum af gleði og tryggð,
Guðsríki boðum í sérhverri byggð.
Saman við heiðrum nú hverja Guðs dyggð,
helgum hans háleita nafn.
(VIÐLAG)
Fús Jehóva fylgdu,
fagna yfir því.
Hann getur ei gleymt þér,
gakk ljósi hans í.
Flyt boðskap um frelsi,
frið jörðinni á.
Stjórn Guðs Kristur stýrir,
stöðugt vex hún þá.
3. Árásir Satans við óttumst ei hér,
alvaldur Jehóva með okkur er.
Fámennur gegn mörgum gengur hans her,
Guð veitir styrk sinn og mátt.
(VIÐLAG)
Fús Jehóva fylgdu,
fagna yfir því.
Hann getur ei gleymt þér,
gakk ljósi hans í.
Flyt boðskap um frelsi,
frið jörðinni á.
Stjórn Guðs Kristur stýrir,
stöðugt vex hún þá.
(Sjá einnig Sálm. 94:14; Orðskv. 3:5, 6; Hebr. 13:5.)