Söngur 28
Nýi söngurinn
1. Syngjum Guði söng, af krafti syngjum nýjan brag.
Boðum dáðir Drottins af dirfsku sérhvern dag.
Máttug höndin hans mun veita honum sigur létt.
Réttvís Drottinn dæmir í dómum ávallt rétt.
(VIÐLAG)
Syngjum söng
með djúpum þakkaróm.
Syngjum söng
því Guð á konungdóm.
2. Gjalli gleðióp, við þökkum Guði dægrin löng.
Lífsins föður lofum, í lofgjörð flytjum söng.
Kom í þessa þröng og syngið þýðum rómi lag.
Lúður, horn og harpa samhljóma sérhvern dag.
(VIÐLAG)
Syngjum söng
með djúpum þakkaróm.
Syngjum söng
því Guð á konungdóm.
3. Heiðri Drottinn höf og skepnur hafsins endalaust.
Ásamt allri sköpun nú upp við hefjum raust.
Fagni lönd og láð og sérhver lækur klappi dátt.
Fjöllin einnig fagni, öll fylgjum Guði sátt.
(VIÐLAG)
Syngjum söng
með djúpum þakkaróm.
Syngjum söng
því Guð á konungdóm.
(Sjá einnig Sálm. 96:1; 149:1; Jes. 42:10.)