Söngur 2
Við þökkum þér, Jehóva
1. Við þökkum þér, Jehóva, lífgjöf og ljós,
þá leiðsögn sem verðskuldar einlægt hrós,
þá blessun að mega í bæn leita þín
og bera fram málefni okkar brýn.
2. Við þökkum þér Guð að þú gafst soninn þinn
sem gat staðist allt, unnið sigurinn.
Við þökkum þér vissu um vilja þinn nú
svo við getum efnt okkar heit í trú.
3. Við þökkum þér Guð að þú gafst heiður þann
að göfga þitt nafn, kynna sannleikann.
Við þökkum að bráðum þú afmáir illt,
og eilífa blessun þú senda vilt.
(Sjá einnig Sálm. 50:14; 95:2; 147:7; Kól. 3:15.)