Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 32

Verum staðföst og óbifanleg

Verum staðföst og óbifanleg

(1. Korintubréf 15:58)

1. Átökin aukast um öll jarðar lönd,

óttast menn það sem nú gengur í hönd.

Stöndum því einbeitt og óbifanleg,

áræðin göngum Guðs veg.

(VIÐLAG)

Staðföst við stöndum því trú,

sterk, fjarri heiminum nú.

Orði Guðs nærumst á, ráðvendi iðkum bljúg.

2. Heimurinn freistar og hremmir hvern mann,

heilbrigð í hugsun þó sigrum við hann.

Ef við svo Guðs vegi göngum rétt á,

gæfu og líf munum fá.

(VIÐLAG)

Staðföst við stöndum því trú,

sterk, fjarri heiminum nú.

Orði Guðs nærumst á, ráðvendi iðkum bljúg.

3. Heilagan Guð dýrkum hjartanu frá,

hlutdeild í þjónustu hans fáum þá.

Síðustu dögunum fækkandi fer,

flýtum því starfinu hér.

(VIÐLAG)

Staðföst við stöndum því trú,

sterk, fjarri heiminum nú.

Orði Guðs nærumst á, ráðvendi iðkum bljúg.

(Sjá einnig Lúk. 21:9; 1. Pét. 4:7.)