Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 34

Lifum á verðugan hátt

Lifum á verðugan hátt

(Jesaja 43:10-12)

1. Eilífi Jehóva, alvaldur ertu,

alger í réttlæti, ástríkur mjög.

Uppspretta sannleiks og algerrar speki,

æðstur og einvaldur setur þú lög.

Við höfum yndi af þjónustu þinni,

þakklát við boðum þinn sannleik og sátt.

(VIÐLAG)

Vegsemd við hljótum sem vottarnir þínir,

viljum því lifa á verðugan hátt.

2. Samlynd við berum þinn boðskap til manna,

bræðrabönd okkar það eflir og ást.

Orð þitt við flytjum og förum því eftir,

fögnuð það veitir er menn að þér dást.

Á nafni þínu við þekkjumst hér, faðir,

þinn hróður aukum, það skilið þú átt.

(VIÐLAG)

Vegsemd við hljótum sem vottarnir þínir,

viljum því lifa á verðugan hátt.