Söngur 11
Gleðjum hjarta Jehóva
1. Við hétum, Guð, að þjóna þér,
starf þitt með visku efla ber.
Hver þjónn þinn gerir þannig sitt
til þess að gleðja hjarta þitt.
2. Af ,hyggnum þjóni‘ hér á jörð
þín hátign er nú kunnug gjörð.
Með fæðunni í tæka tíð
hann traustur styrkir vel þinn lýð.
3. Þinn anda veittu okkur nú
svo öll við getum verið trú
og borið ávöxtinn sem er
til yndis og til dýrðar þér.
(Sjá einnig Matt. 24:45-47; Lúk. 11:13; 22:42.)