Söngur 5
Kristur, fyrirmynd okkar
1. Guðs ást er okkur sýnd,
við erum blessun krýnd,
því öllu mannkyni gaf hann sinn son.
Reynst getur gæfu brauð
sem græðir fólk í nauð,
um lífið eilíft og frið veitir von.
2. Þá Kristur bæn fram bar,
sú bæn um nafn Guðs var,
að nafnið Jehóva mest helgist hér.
Hans vilji verði þá
og veldi jörðu á,
að daglegt brauð Drottins þjónn hafi hver.
3. Guð sonur sannleik bauð
er sannan gefur auð
þeim er nú safnast í hans trúu hjörð.
Guðs sæði sáum því
hans sannleiksljósi í,
þá gleði öðlumst við um alla jörð.
(Sjá einnig Matt. 6:9-11; Jóh. 3:16; 6:31-51; Ef. 5:2.)