Söngur 45
Sækjum fram
1. Sækjum fram, sækjum fram, þroska flýtum nú,
því að fær í Guðs starfi við getum verið trú.
Legg þig fram svo að framförum takir þú,
blessun færð þá Guði frá.
Það er verk fyrir vott hvern á jörð,
Jesús vann það við létt kjör og hörð.
Þannig staðföst um réttlætið stöndum vörð
og Guð stöðugt treystum á.
2. Sækjum fram, sækjum fram, ekki forðast menn,
óhrædd fagnaðarerindið flytjum fólki enn.
Lofum Jehóva hugrökk og hrein í senn
tölum hiklaust við hvern mann.
Þó að óvinir uppveki styr
alveg ósmeyk við þjónum sem fyrr.
Mönnum Guðsríki kynnum við hverjar dyr
og þeim kennum sannleikann.
3. Sækjum fram, sækjum fram, sýnum framför hér,
starfi fylgjum við eftir, því verkið mikið er.
Láttu anda Guðs uppörvun gefa þér,
gleði uppskerð Guði frá.
Fólki auðsýnum ástríka lund,
förum aftur og ræðum um stund.
Bjóðum alls konar aðstoð og hjálparmund,
látum alla sannleik sjá.
(Sjá einnig Fil. 1:27; 3:16; Hebr. 10:39.)