Söngur 116
Ljósið verður bjartara
1. Guðs spámenn í fræðsluna fýsti um Krist,
að fræðast um von þjáðra manna.
Guðs andi um Messías miðlaði von,
hans miskunn og hjálpráð það sanna.
Hans tími er kominn að taka hér völd,
öll táknin þau eru svo skýr.
Við metum að verðleikum vitneskju þá,
englar þrá þessi sannindi dýr.
(VIÐLAG)
Æ bjartari braut okkar verður
í birtu frá hádegissól.
Sjá allt sem Guð opnar og birtir
og einnig hans leiðsögn og skjól.
2. Guð hefur sett traustan og trúfastan þjón,
í tíma hann fæðunni dreifir.
Ljós sannleikans skýrist og skin þess það vex,
við skilningi og hjarta hreyfir.
Er leiðin æ skýrist og skref verða styrk
við skundum á dagbjarta braut.
Og sannleikans uppsprettu eignum við lof
því Guðs orð okkur verndar gegn þraut.
(VIÐLAG)
Æ bjartari braut okkar verður
í birtu frá hádegissól.
Sjá allt sem Guð opnar og birtir
og einnig hans leiðsögn og skjól.
(Sjá einnig Rómv. 8:22; 1. Kor. 2:10; 1. Pét. 1:12.)