Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 83

Sýnum sjálfsaga

Sýnum sjálfsaga

(Rómverjabréfið 7:14-25)

1. Jehóva elskum af hjarta og hug

en holdinu vísum með sjálfstjórn á bug.

Hyggja þess er öll hjóm eitt og kíf,

hyggja Guðs anda er friðsamt líf.

2. Lævís býr Satan sér ljósengilsmynd

og lúmsk okkur tælir hin meðfædda synd.

Sannleikur þó af syndinni ber,

sigrar með Jehóva þjónn hans hver.

3. Vitnar um nafn Guðs hvert verk okkar gott,

um vammleysi beri öll orð okkar vott.

Stöðugt við sýnum staðfasta lund,

stundum því sjálfsaga hverja stund.