Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 36

„Það sem Guð hefur tengt saman“

„Það sem Guð hefur tengt saman“

(Matteus 19:5, 6)

1. Þeim hjónum gefur Guð

sinn gullna þriðja þráð,

þau virða helgu heitin

sem hljóma hér í bráð.

Hann hét að unna henni

af hjartans innstu þrá.

(VIÐLAG)

Það sem Guð tengir saman,

því sundra enginn má.

2. Þau lög Guðs hafa lært

við lífsins orða leit.

Nú bæði tvö Guð biðja

að blessa þeirra heit.

Hún hét að unna honum

af hjartans innstu þrá.

(VIÐLAG)

Það sem Guð tengir saman,

því sundra enginn má.