Söngur 97
Gangið fram, boðberar Guðsríkis
1. Fram göngum og Guðsríki boðum,
með gleði á hverjum stað.
Með kærleik í hjarta þeim hjálpum
sem hógværir laðast að.
Við starf okkar metum öll mikils,
þá mildum er sögð besta frétt.
Á akrinum störfum því áfram
og upphefjum nafn Guðs og rétt.
(VIÐLAG)
Göngum fram og boðum hugrökk
Guðs stjórn bæði vítt og breitt.
Göngum fram í tryggð sem elskum
Jehóva Guð okkar heitt.
2. Guðs boðberar framsæknir fagna,
þeim fögur laun falla’ í skaut.
Í frelsarans fótspor við göngum,
þá fetum við lífsins braut.
En frétt um Guðs framtíðarríki
nú flytja til mannanna þarf.
Í krafti frá Jehóva knúið,
mun klárast hið víðfeðma starf.
(VIÐLAG)
Göngum fram og boðum hugrökk
Guðs stjórn bæði vítt og breitt.
Göngum fram í tryggð sem elskum
Jehóva Guð okkar heitt.
3. Fram sækjum og samstöðu sýnum,
Guðs sauðir með tvenna von.
Jafnt konur og ungir sem aldnir,
þau öll hylla Drottins son.
Sem vanaverk aldrei það vinnum,
en virðum hið heilaga verk.
Og verum öll Jehóva verðug
þá veitum við þjónustu sterk.
(VIÐLAG)
Göngum fram og boðum hugrökk
Guðs stjórn bæði vítt og breitt.
Göngum fram í tryggð sem elskum
Jehóva Guð okkar heitt.
(Sjá einnig Sálm. 23:4; Post. 4:29, 31; 1. Pét. 2:21.)