Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 49

Jehóva er hæli okkar

Jehóva er hæli okkar

(Sálmur 91)

1. Guð háborg er og hæli,

við honum getum treyst.

Í skugga hans er skýli,

þeim skjól sem hefur þreyst.

Hann sjálfur okkar sinnir vörn,

um sína hugsar sem sín börn.

Jah Guð er okkar athvarf,

hefur afdrep réttlátum reist.

2. Og þó að þúsund falli

til þín það ekki nær,

því ásamt mörgum öðrum

Guð öruggt skjól þér fær.

Þú skelfast ekki ógnir þarft

né aðsteðjandi tjónið margt.

Með augum aðeins horfir,

sterkur armur hans er þér kær.

3. Þér vernd mun Drottinn veita,

frá veiðum fuglarans.

Við steini fót ei steytir,

þú stenst því gildrur hans.

Þig ljónagin ei fælir frá,

með fótum treður nöðrur á.

Jah Guð er hæsta hælið,

besti hlífiskjöldur er manns.