Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 12

Loforð um eilíft líf

Loforð um eilíft líf

(Sálmur 37:29)

1. Eilífu lífi Guð lofar

látlaust hér jörðinni á,

umbun sem öllu er ofar

auðmjúkt fólk hlýtur þá.

(VIÐLAG)

Líf eilíft við hljótum

ef náðar Guðs njótum.

Orð Guðs trúföst eru,

allt gerir hann nýtt.

2. Paradís fullkomnun færir,

frelsinu loks kynnumst við.

Undir Guðs leiðsögn fólk lærir,

lífsins farsæla frið.

(VIÐLAG)

Líf eilíft við hljótum

ef náðar Guðs njótum.

Orð Guðs trúföst eru,

allt gerir hann nýtt.

3. Innan skamms upprisan þráða

afmáir sorg, læknar sár.

Ást Guðs er auðsýnd þeim þjáða,

öll hann þerra mun tár.

(VIÐLAG)

Líf eilíft við hljótum

ef náðar Guðs njótum.

Orð Guðs trúföst eru,

allt gerir hann nýtt.