Söngur 53
Störfum saman í einingu
1. Allir sem Guð safnar af náð
saman njóta þess sem var spáð.
Samlynd höfum hlýlegan frið,
hamingju njótum við.
Einingu við elskum,
yndisleg er hún.
Stöðugt er í starfi Guðs þörf,
styður okkur Kristur við störf.
Sýnum honum hlýðin í lund
hollustu hverja stund.
2. Biðjum oft um einingarhug,
ávöxt andans ræktum af dug.
Lofgjörð glæðir, gæsku og ást,
gleði og friður nást.
Friður okkur örvar,
yndisauki er.
Ef við bróðurást munum tjá
okkur frið mun Jehóva ljá.
Með hans aðstoð einhugur næst,
endalaust lífið fæst.
(Sjá einnig Míka 2:12; Sef. 3:9; 1. Kor. 1:10.)