Söngur 107
Göngum á fjall Jehóva
1. Hefjið augun nú upp,
horfið á fjall Jehóva.
Ofar en hæstu hæðir
hátt það upphafið er.
Allt frá hafi til hafs
streymir hingað fólk í dag.
Kallar það hvert til annars:
„Komum Guð dýrkum hér.“
Gera mun máttur Guðs
nú hinn minnsta að voldugri þjóð.
Í hans náð vöxum við,
blessun veitir hans leiðbeining góð.
Margar milljónir nú
virða mest Guðs drottinvald.
Gott fólk af hug og hjarta
hollustu Guði sver.
2. Jesús berlega bauð
það að boða Drottins orð.
Fréttin um friðarríkið
fljótt því til allra fer.
Kristur hvetur nú menn:
„Styðjið konungsríki mitt.“
Veginn þeir lítillátu
láti Guð vísa sér.
Alltaf vex meir og meir
mikill múgur um allt jarðarhvel.
Þátt í því eigum öll,
kynnast aðrir þá Jehóva vel.
Hrópum öll þessi orð:
„Göngum upp fjall Jehóva.
Dveljum þar alla eilífð,
öruggir einn og hver.“
(Sjá einnig Sálm. 43:3; 99:9; Jes. 60:22; Post. 16:5.)