Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 88

Ykkur er trúað fyrir börnunum

Ykkur er trúað fyrir börnunum

(Sálmur 127:3-5)

1. Þegar karlmaður og kona

eignast kornabarn það umbun er hrein.

En hugfast báðum ber að hafa:

Þau eiga barnið ekki ein.

Það barn er gjöf sem Drottinn gefur

sem lífsins Guð og skapari hvers manns.

Hann veitir foreldrunum fræðslu,

þeim ber að fylgja handleiðslu hans.

(VIÐLAG)

Þið hafið fengið heilagt hlutverk,

í ykkar höndum er nýtt líf.

Að fræða barn um boðskap Drottins

það veitir blessun Guðs og hlíf.

2. Öll þau boð sem Guð þinn gefur

eru gersemar og aldrei því gleym.

Við börnin tíðum um þau talir

því þér er trúað fyrir þeim.

Á þínum ferðum fræddu börnin,

er þú á fætur ferð, er hvílist þú.

Þau boð Guðs megi ætíð muna,

hans blessun megi þau hljóta trú.

(VIÐLAG)

Þið hafið fengið heilagt hlutverk,

í ykkar höndum er nýtt líf.

Að fræða barn um boðskap Drottins

það veitir blessun Guðs og hlíf.