Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 68

Bæn hins bágstadda

Bæn hins bágstadda

(Sálmur 4:1)

1. Ó Jehóva, ég bið til þín, æ heyr mitt bænarhróp.

Því hyldjúp sárin gróa seint sem lífsins ok mér skóp.

Tíð vonbrigði og depurð hafa dregið mátt úr mér.

Ó Drottinn minn, Guð huggunar, ég leita skjóls hjá þér.

(VIÐLAG)

Mig reistu við og veit mér þrótt

og trausta von gegn efans sótt.

Ég ráðalaus þín leita nú.

Ó Drottinn, ljá mér kraft og trú.

2. Þitt orð mig ætíð huggar og mér hæli veitir það.

Mál hjartans tjáir þau sem ég kom ekki orðum að.

Með orði þínu trúarstyrk og traust nú gefðu mér,

að treysta því að hjarta mínu meiri ást þín er.

(VIÐLAG)

Mig reistu við og veit mér þrótt

og trausta von gegn efans sótt.

Ég ráðalaus þín leita nú.

Ó Drottinn, ljá mér kraft og trú.