Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 81

Auk okkur trú

Auk okkur trú

(Lúk. 17:5)

1. Ó Jehóva, við ófullkomin erum,

gegn illum hneigðum hjartans berskjölduð.

Sú synd er til sem völdin getur tekið,

að skorta trú á þig, hinn sanna Guð.

(VIÐLAG)

Auk okkur trú, ó Jehóva í tíma,

hún verði traust og ætíð nógu sterk.

Auk okkur trú í takt við þína miskunn

svo æ þig tigni okkar orð og verk.

2. En þér mun enginn þóknast vel án trúar

og þeim sem trúa veitir þú þitt lið.

Með trúarskjöld, sem alveg okkur skýlir,

við horfa skulum óhrædd fram á við.

(VIÐLAG)

Auk okkur trú, ó Jehóva í tíma,

hún verði traust og ætíð nógu sterk.

Auk okkur trú í takt við þína miskunn

svo æ þig tigni okkar orð og verk.