Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 66

Þjónum Jehóva af allri sálu

Þjónum Jehóva af allri sálu

(Matteus 22:37)

1. Jehóva þú einn átt alvald,

elsku og hlýðni mína þú átt.

Vígslu minnar verður ertu,

varðar hún líf mitt, allt stórt og smátt.

Boðum þínum ber mér að fylgja,

blessun tel ég að hlýða þér.

(VIÐLAG)

Jehóva, af heilum huga

hjartfólgna hlýðni færð þú frá mér.

2. Verk þín faðir vitna um þig,

vegsemd þér veitir himinn og jörð.

Óskipt gef ég allt mitt líf þér,

eiga vil hlut minn í þakkargjörð.

Vígsluheit mitt vil ávallt halda,

vera þannig þér geðfellt ker.

(VIÐLAG)

Jehóva, af heilum huga

hjartfólgna hlýðni færð þú frá mér.