Söngur 118
Takið vel á móti hvert öðru
1. Velkomnir hingað vinir skaparans
og veg Guðs lærið frá orði hans.
Lífgandi sannleik blíður hann fram ber,
það boð Guðs þiggur þakklátur vottur hans hver.
2. Guði við þökkum þeirra bræðraþel
sem þóknast okkur og fagnar vel.
Ætíð í heiðri höfum slíka menn
og heilsum öllu fólki sem safnast hér enn.
3. Boð Guðs til eyrna allra manna nær
og einlægt fólk Drottins sannleik fær.
Guð dregur trúa til sín fyrir Krist,
þá takið vel á móti hvert öðru af lyst.
(Sjá einnig Jóh. 6:44; Fil. 2:29; Opinb. 22:17.)