Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 129

Höldum fast í vonina

Höldum fast í vonina

(Hebrearbréfið 6:18, 19)

1. Menn hafa þreifað í myrkrinu um aldir,

mannkynið hefur að vindi stundað leit.

Við erum sorglegum vanmætti faldir,

viðreisn ei fáum úr þeirri sveit.

(VIÐLAG)

Gleðjist því hver, ríki Guðs stofnsett er,

því Guðs sonur frelsar frá óttanum hér.

Loks mönnum hjá endar harmur og vá,

svo höldum sem akkeri von okkar þá.

2. „Dagurinn nálgast!“ Guðs djörfu þjónar boða,

dylgjur um seinlæti Guðs ei heyrast meir.

Sköpun er stynur hann verndar frá voða.

Vegsemd um Drottin nú syngja þeir.

(VIÐLAG)

Gleðjist því hver, ríki Guðs stofnsett er,

því Guðs sonur frelsar frá óttanum hér.

Loks mönnum hjá endar harmur og vá,

svo höldum sem akkeri von okkar þá.