Söngur 78
Langlyndi
1. Mjög annt um einstætt nafn sitt
svo æðstum Jehóva nú er.
Hann þráir heitt af hjarta
að hreinsa það af lygum hér.
Hann öldum saman sýndi
hvað hann sjálfur gæti þreytt,
að langlyndur og ljúfur
hann lýist ekki neitt.
Það hans er helsti vilji
að hólpnir verði alls kyns menn.
Þá aldrei er til einskis
Guðs ást og langlyndi í senn.
2. Ef líka erum langlynd,
Guð lýsir okkur rétta leið.
Það veitir værð í hjarta
og vernd frá því að vera reið.
Er öðrum gaum við gefum
allt það góða ætlum þeim
og langlynd þolum þrautir
og þennan grimmdarheim.
Því ásamt öðrum dygðum
sem andinn helgi glæðir best
við langlynd munum líkjast
að lokum okkar Guði mest.
(Sjá einnig 2. Mós. 34:14; Jes. 40:28; 1. Kor. 13:4, 7; 1. Tím. 2:4.)