Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 131

Jehóva, frelsari okkar

Jehóva, frelsari okkar

(2. Samúelsbók 22:1-8)

1. Þú lifandi ert Jehóva og líknar best,

þig lofa máttarverk, þitt handbragð víða sést.

Það getur enginn gert slíkt, nei, hvorki einn eða neinn.

Gereyðing vondir fá.

(VIÐLAG)

Þeim tryggu Jah Jehóva frelsun færir,

hans fylgjendur sjá að hann tögl og hagldir á.

Full af dirfsku og trausti á Guð, dreifum hans dáð,

kynnum djarflega frelsarann Guð og hans bjargráð.

2. Ef þrengjast að mér heljarbönd ég hrópa hátt,

ó, heyr mig Jehóva og veit mér styrk og mátt.

Þú Guð, sem ert á himni, hún berst til þín bænin mín:

bjargaðu mér úr neyð.

(VIÐLAG)

Þeim tryggu Jah Jehóva frelsun færir,

hans fylgjendur sjá að hann tögl og hagldir á.

Full af dirfsku og trausti á Guð, dreifum hans dáð,

kynnum djarflega frelsarann Guð og hans bjargráð.

3. Þú þruma munt af himni brátt með þinni raust,

ógn þínum fjendum ert en trúum veitir traust.

Og það sem þú vilt verða þú verður þá, allir sjá.

Verndari reynist þú.

(VIÐLAG)

Þeim tryggu Jah Jehóva frelsun færir,

hans fylgjendur sjá að hann tögl og hagldir á.

Full af dirfsku og trausti á Guð, dreifum hans dáð,

kynnum djarflega frelsarann Guð og hans bjargráð.