Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 58

Vígslubæn mín

Vígslubæn mín

(Matteus 22:37)

1. Þiggðu hjarta mitt sem má

meta visku himni frá.

Þiggðu huga minn og mátt,

mun ég þjóna þér í sátt.

2. Þiggðu hvora hönd og fót,

haldi þau öll boð þín fljót.

Þiggðu, Guð minn, sigursöng

sem ég flyt þér dægrin löng.

3. Þiggðu líf mitt, láttu það

lagast þínum vilja að.

Þiggðu mig og megi ég

mikla þig á sérhvern veg.