Söngur 95
Finnið og sjáið að Jehóva er góður
1. Við metum það starf svo mikils
að mega við prédikun fást.
Og notum þá stund sem nýtist hvað best
því nú þarf til margra að nást.
(VIÐLAG)
Finnið og sjáið, gefið því gaum:
góður Jah Jehóva er.
Guðrækni ávallt ávinning ber,
af heilum hug störfum hér.
2. Fólk finnur í fullu starfi
Guðs fjársjóð og blessanir hans.
Hann annast það vel og öruggt það er
og ánægt með laun skaparans.
(VIÐLAG)
Finnið og sjáið, gefið því gaum:
góður Jah Jehóva er.
Guðrækni ávallt ávinning ber,
af heilum hug störfum hér.
(Sjá einnig Mark. 14:8; Lúk. 21:2; 1. Tím. 1:12; 6:6.)