Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 96

Leitum að hinum verðugu

Leitum að hinum verðugu

(Matteus 10:11-15)

1. Að kunngera Guðsríki Kristur gekk fremst

og kenndi þá aðferð við störf:

,Á ferð ykkar leitið og finnið það fólk

sem er fúst og í andlegri þörf.

Er ókunnu húsi þið árnið svo góðs

munu einlægir frið ykkar fá.

En hlusti fólk ekki og hafni mjög stíft

rykið hristið af fótunum þá.‘

2. Er hlusta menn á þig þeir hlýða á Krist

og hjartað Guð opna mun þá.

Ef vonina eilífu vekjum hjá þeim

fylgir viljinn að trú sína tjá.

Og óttastu aldrei hvað segja þú átt,

orðin lagt getur Guð þér í munn.

Þá svarið er ljúflegt og saltinu stráð

svo að sannleiksorð Guðs verða kunn.