Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 60

Hann mun styrkja þig

Hann mun styrkja þig

(1. Pétursbréf 5:10)

1. Af gefnu tilefni Guð kaus að kenna þér

og kalla þig í ljósið myrki frá.

Hann sá þitt hjartalag og löngun þína skýrt,

að leita hans og réttlætið að þrá.

Þú hést í bæn að hlýða boðum hans,

hann hjálparhella‘ er sérhvers trúaðs manns.

(VIÐLAG)

Með Jesú blóði keyptur, svo Jehóva þig á.

Hann jafnan mun þér styrk og stuðning sinn þér ljá.

Hann leiðir þig og verndar réttu leiðunum á,

já líkn og kraft hann mun enn trúum þjónum ljá.

2. Guð gaf sinn kæra son sem þjáðist fyrir þig

og því er okkur kleift að vera djörf.

Hann hlífðist eigi við að færa þessa fórn

og fús mun styrkja þig er þess er þörf.

Hann gleymir ekki góðverkum né trú,

og gaum að okkar þörfum gefur nú.

(VIÐLAG)

Með Jesú blóði keyptur, svo Jehóva þig á.

Hann jafnan mun þér styrk og stuðning sinn þér ljá.

Hann leiðir þig og verndar réttu leiðunum á,

já líkn og kraft hann mun enn trúum þjónum ljá.