Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 134

Sjáðu sjálfan þig í nýjum heimi

Sjáðu sjálfan þig í nýjum heimi

(Opinberunarbókin 21:1-5)

1. Ó, sjáðu þig og sjáðu mig,

hver sjái í nýja heiminum sig.

Já, láttu hug þinn líða við

að lifa frjáls við hinn sanna frið.

Þar afnám ei hins illa dregst

því algóð stjórn Drottins aldrei bregst.

Sú stund er þá komin að stöðugt á jörð

blítt streymi frá hjörtum fólks þessi lofsöngsgjörð:

(VIÐLAG)

Ó, Jehóva Guð, vel gert hefur þú!

Allt nýtt og gott undir stjórn Krists er nú.

Þér syngur lof hvert hjarta sem yfirfullt er

því öll dýrð og heiður og lofgjörð heyrir þér.

2. Nú, sjáðu þig og sjáðu mig,

já, sjáum Guðsríkis lífsgæða stig.

Því engin hljóð við óttumst þá

og ekki neitt sem við munum sjá.

Allt hefur ræst, já, allt sem eitt,

nú yfir mannkyn er tjald Guðs breitt.

Með sérhverjum þeim sem af „svefni“ upp rís

við syngjum þá Jehóva þennan þakkarprís:

(VIÐLAG)

Ó, Jehóva Guð, vel gert hefur þú!

Allt nýtt og gott undir stjórn Krists er nú.

Þér syngur lof hvert hjarta sem yfirfullt er

því öll dýrð og heiður og lofgjörð heyrir þér.