Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

SÖNGUR 17

„Ég vil“

„Ég vil“

(Lúkas 5:13)

  1. 1. Kristur sýndi fullkomna ást,

    frá himni kom, fús til að þjást.

    Þekkti vel fólksins þörf

    er vann hann sín störf,

    gaf tíma sinn, aldrei það brást.

    Samúðin í hjarta hans brann

    og sjúka því læknaði hann.

    Sínu umboði gerði hann góð skil

    og fúslega sagði: „Ég vil.“

  2. 2. Í hans fótspor fetum hvern dag,

    Guðs kenningu fegra mun það.

    Förum ástrík og góð

    með dýrmætan sjóð

    og hvetjum og bætum fólks hag.

    Þegar einhver þarf hjálparhönd

    við styrkjum þá vináttubönd.

    Þegar ekkja’ eða einmana þrá yl

    skalt þú fljótur svara: „Ég vil.“