Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

SÖNGUR 34

Göngum fram í ráðvendni

Göngum fram í ráðvendni

(Sálmur 26)

  1. 1. Guð, reyndu mig, því ég met trúfesti,

    sjá mína tryggð við þig og hjartans ráðvendni.

    Rannsaka mig og kanna hjartans blæ

    og hreinsa hugann vel svo blessun frá þér fæ.

    (VIÐLAG)

    Ég ætla mér, staðráðinn ætíð er,

    ég ætlaʼ að ganga hér í ráðvendni með þér.

  2. 2. Við lygara ei leggja vil mitt lið

    og aldrei leyfi mér að fylgja þeirra sið.

    Jehóva, tak ei burtu mína sál

    með þeim sem elska svik og ósætti og tál.

    (VIÐLAG)

    Ég ætla mér, staðráðinn ætíð er,

    ég ætlaʼ að ganga hér í ráðvendni með þér.

  3. 3. Ég elska, Guð, þinn bústað alla tíð

    og tilbið ávallt þar með þínum hreina lýð.

    Ég geng því kringum altari þitt enn

    og enduróma lof svo heyri allir menn.

    (VIÐLAG)

    Ég ætla mér, staðráðinn ætíð er,

    ég ætlaʼ að ganga hér í ráðvendni með þér.

(Sjá einnig Sálm 25:2.)