SÖNGUR 35
Metum rétt það sem máli skiptir
-
1. Með góðri dómgreind glæðum við skilning
og getum séð hvað rétt er
og skilið vel hvað mest skiptir máli
og metið hvað gera ber.
(VIÐLAG)
Elskum allt gott, illt hötum við,
elskum Guðs frið.
Blessanir hljótum er höfum við lært,
hug okkar nært.
Metum því allt sem er mikilvægt.
-
2. Hvað skiptir meira máli í dag
en að miðla Guðsríkisfrétt,
að finna þá sem fálma í myrkri
svo fái þeir valið rétt?
(VIÐLAG)
Elskum allt gott, illt hötum við,
elskum Guðs frið.
Blessanir hljótum er höfum við lært,
hug okkar nært.
Metum því allt sem er mikilvægt.
-
3. Ef metum það sem mest skiptir máli
þá mæðu vísum á bug.
Og friður æðri hamlandi hugsun
mun hjartað vernda og hug.
(VIÐLAG)
Elskum allt gott, illt hötum við,
elskum Guðs frið.
Blessanir hljótum er höfum við lært,
hug okkar nært.
Metum því allt sem er mikilvægt.
(Sjá einnig Sálm 97:10; Jóh. 21:15-17; Fil. 4:7.)