Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

SÖNGUR 50

Vígslubæn mín

Vígslubæn mín

(Matteus 22:37)

  1. 1. Þiggðu hjarta mitt sem má

    meta visku himni frá.

    Þiggðu lofsöng minn og mál,

    miklar nafn þitt öll mín sál.

  2. 2. Hendur þér og fætur fel,

    feta þína slóð ég vel.

    Dýrmætin að gjöf þér gef,

    gjafmildi mér tamið hef.

  3. 3. Hér er líf mitt, þiggðu það,

    þínum vilja laga að.

    Þiggðu mig, þá allur er

    auðsveipur í hendi þér.