Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

SÖNGUR 59

Lofum öll Guð

Lofum öll Guð

(Sálmur 146:2)

  1. 1. Lofum öll Guð,

    syngjum nú lag,

    hann líf og ljós okkur gefur hvern dag.

    Alltaf það er

    skylda hvers manns

    að lofa elsku og máttarverk hans.

    Lofum og játum öll nafn skaparans.

  2. 2. Lofum öll Guð,

    góður hann er,

    hlustar á bænir og um okkur sér.

    Hann gerir menn

    sterka sem stál,

    styrk veitir andi Guðs auðmjúkri sál.

    Tilbeiðsla hans okkur er hjartans mál.

  3. 3. Lofum öll Guð,

    hefjum upp raust,

    hann veitir huggun, á hann setjum traust.

    Færa mun hann

    fljótt allt í lag,

    mönnunum verka þá mun allt í hag.

    Fagnandi lofum því hann sérhvern dag.