Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

SÖNGUR 66

Boðið fagnaðarboðskapinn

Boðið fagnaðarboðskapinn

(Opinberunarbókin 14:6, 7)

  1. 1. Hér áður heilmargt hulið um Guðsríki var.

    Nú höfum við um kóng þess fengið augljóst svar.

    Og mönnum sýndi Jehóva svo mikla náð,

    á mannkyni sá aumur sem var syndum hrjáð.

    Á réttum tíma stjórn Guðs yrði stofnsett þá

    og stjórna skyldi sonur hans

    allri jörðu á.

    Hann síðar leiddi brúðina til sonarins

    en sjálfur hana valdi Guð til himinsins.

  2. 2. Menn vissu af þeim boðskap sem nú víða fer,

    Guð vill að hann sé öllum gerður opinber.

    Hans englum þykir yndislegt að flytja hann

    og ásamt þeim við fræðum fólk um sannleikann.

    Við höfum öll þá skyldu og þann heiður nú

    að helga nafnið hans

    og lofa hann trygg og trú.

    Það vegsemd er að vera vottur skaparans

    og vitna um hinn dásamlega boðskap hans.