Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

SÖNGUR 67

Boða trú

Boða trú

(2. Tímóteusarbréf 4:2)

  1. 1. Guð okkur fyrirmæli gaf,

    við þeim getum ætíð tekið mið af.

    Við ræðum því reiðubúin nú

    um rök sem styðja okkar von og trú.

    (VIÐLAG)

    Já, boða trú,

    heyri allir nær og fjær.

    Boða trú,

    heimsins endir færist nær.

    Boða trú

    öllum auðmjúkum ávallt.

    Boða trú

    um landið allt.

  2. 2. Andstaða okkur getur mætt,

    grimmar ofsóknir og smán okkur hrætt.

    Ef boðunin lítinn ávöxt ber

    við berum traust til Guðs sem æðstur er.

    (VIÐLAG)

    Já, boða trú,

    heyri allir nær og fjær.

    Boða trú,

    heimsins endir færist nær.

    Boða trú

    öllum auðmjúkum ávallt.

    Boða trú

    um landið allt.

  3. 3. Tímabil hagkvæm hljótum við,

    fólki hjálpum þá að öðlast Guðs frið.

    Með hjálp okkar hlýðnir fá Guðs laun,

    þá helgum við nafn Jehóva í raun.

    (VIÐLAG)

    Já, boða trú,

    heyri allir nær og fjær.

    Boða trú,

    heimsins endir færist nær.

    Boða trú

    öllum auðmjúkum ávallt.

    Boða trú

    um landið allt.