Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

SÖNGUR 74

Takið undir sönginn um ríkið

Takið undir sönginn um ríkið

(Sálmur 98:1)

  1. 1. Nú gleðisöng, já, sigursöng má heyra,

    þeim veitir sæmd sem allra æðstur er.

    Hann vekur von og eflir þeirra eldmóð

    sem taka undir ríkissönginn hér:

    (VIÐLAG)

    Guð dýrkið djörf með dýrðarvon

    og kynnið Krist, hans konungsson.

    Já, lærið söng um konungsríkið kristna

    og Guði krjúpið, lofið nafnið hans.

  2. 2. Með söngnum nýja náðarríkið boðum,

    vald Jesú nær til jarðarinnar nú.

    Hér hefur fæðst ný þjóð í landi friðar,

    hún ríkið fær og syngur sönginn trú:

    (VIÐLAG)

    Guð dýrkið djörf með dýrðarvon

    og kynnið Krist, hans konungsson.

    Já, lærið söng um konungsríkið kristna

    og Guði krjúpið, lofið nafnið hans.

  3. 3. Já, þennan óð þeir auðmjúku nú læra,

    þau skýru orð sem eru björt og hlý.

    Um heiminn allan fleiri sönginn æfa

    og bjóða öðru fólki kórinn í:

    (VIÐLAG)

    Guð dýrkið djörf með dýrðarvon

    og kynnið Krist, hans konungsson.

    Já, lærið söng um konungsríkið kristna

    og Guði krjúpið, lofið nafnið hans.